Gifting í vændum?
Brúðkaupsblóm
Við bjóðum upp á mismunandi leiðir til að fullkomna stóra daginn — hvort sem þið viljið skreyta sjálf eða láta okkur um allt, frá afhendingu til uppsetningar.

Lágstemmt brúðkaup
Blóm eru afhent í búntum og brúðhjón sjá sjálf um að skreyta. Brúðarvöndur og barmblóm koma tilbúin.
Verð frá
85.000 kr.
- Efni í borðaskreytingar fyrir gestaborð (miðað við 10 gestaborð)
- Brúðarvöndur (kemur tilbúinn)
- Barmblóm, að hámarki 4 stk. (koma tilbúin)
Klassískt brúðkaup
Blóm eru afhent í búntum og brúðhjón sjá sjálf um að skreyta. Brúðarvöndur og barmblóm koma tilbúin.
Verð frá
125.000 kr.
- Efni í borðaskreytingar gestaborð (miðað við 10 gestaborð)
- Brúðarvöndur (kemur tilbúinn)
- Barmblóm, að hámarki 4 stk. (koma tilbúin)
- Efni í 2 háa vendi í vasa (t.d. á borði hjá gestabók og á veitingaborð)
- Efni í skreytingu fyrir háborð
Allur pakkinn
Allar skreytingar í þessum pakka eru afhentar tilbúnar.
Verð frá
180.000 kr.
- Borðaskreytingar fyrir gestaborð (10 gestaborð innifalin í grunnverði)
- Brúðarvöndur
- Barmblóm (4 barmblóm innifalin í grunnverði)
- 2 háir vendir í vasa
- Blóm á háborð
Við bjóðum upp á mismunandi útfærslur af brúðkaupspökkum. Í lágstemmda og klassíska brúðkaupspakkanum færð þú afhent búnt af blómum og sérð sjálf/ur um skreytingu á salnum. Brúðarvöndur og barmblóm koma tilbúin.
Ef þú pantar „allan pakkann“ sjá blómahönnuðir okkar um að útbúa allar skreytingar og þær eru afhentar tilbúnar. Það eina sem þú þarft þá að gera er að leggja þær á rétta staði í salnum.
Í öllum brúðkaupspökkum okkar eru blómin tilbúin til afhendingar daginn fyrir brúðkaup. Við erum til húsa í Vesturhlíð 7 í 105 Reykjavík og þar sækirðu brúðkaupsblómin þín á umsömdum tíma.




Brúðarvöndur
Hannaður utan um ykkar stund
Brúðarvöndurinn er sérhannaður út frá ykkar stíl og persónuleika — við tökum tal saman um liti, blóm og stemningu áður en stóri dagurinn rennur upp.
Stakar blómategundir fyrir brúðkaup
Ef þú þarft bara nokkrar stakar blómategundir, ekki brúðarvönd né barmblóm. Þú færð búntin afhent og raðar sjálf/ur í vasana. Þú getur að sjálfsögðu aukið fjölda búnta eða minnkað eftir fjölda gesta og stærð salarins. Eftirfarandi magn er til viðmiðunar.

Brúðarslör
15 búnt af brúðarslöri (u.þ.b. 4 greinar í búnti)
Hentugt fyrir um það bil 100 gesta veislu
Fyrir skreytingar hér og þar um salinn
42.790 kr.

Eucalyptus
80 greinar af Eucalyptus
Hentugt fyrir um það bil 80–100 gesta veislu
Fyrir skreytingar hér og þar um salinn
35.790 kr.
Fleiri vendir sem við höfum gert



Alvöru brúðkaup, alvöru blóm
Nokkur pör sem hafa treyst okkur fyrir blómunum á stóra deginum sínum.

María Thelma og Steinar
Athöfn í Hallgrímskirkju og veisla í Háteigi á Grand hótel. María og Steinar vildu að blóm umkringdu þau á stóra deginum og voru með veglegar skreytingar hjá háborði í veislu ásamt altarisvöndum og blómvöndum í kirkjunni. Dagurinn var einstaklega elegant og fallegur.
Mynd eftir Elísabet Blöndal

Sóley og Arnþór
Sóley og Arnþór giftu sig við fallega athöfn í Kópavogskirkju. Vöndurinn hennar Sóleyjar var einstaklega fallegur orkideu vöndur sem Erla blómaskreytir setti saman ásamt stofugulli.

Klara og Birgir
Klara og Birgir kusu að hafa brúðkaupið lítið, sætt og óhefðbundið. Þau létu pússa sig saman hjá sýslumanni og fór brúðkaupmyndatakan fram í Melabúðinni. Vöndurinn var náttúrulegur í takt við brúðhjónin.

Tierney og Justin
Tierney og Justin giftu sig við hátíðlega athöfn í Ingólfsskála rétt fyrir utan Hveragerði. Þau fóru alla leið og skreyttum við salinn með guðdómlega fallegum dúnspora sem hékk úr loftinu, ásamt garðarósum og hvítum rósum.
Mynd eftir Olya Shechenko

Sandra og Arnór
Sandra og Arnór giftu sig við hátíðlega athöfn í Kópavogskirkju. Sandra valdi sér tímalausar og klassískar hvítar rósir sem Erla blómaskreytir setti saman á nútímalegan hátt.

Benedikta og Markús
Benedikta og Markús gengu í það heilaga 8. júní síðastliðinn. Blómstra sá um blómin í veislunni, barmblómin og brúðarvöndinn. Brúðarvöndurinn hennar Benediktu var samsettur úr fallegum calla liljum og barmblóm brúðgumans voru í stíl en þau voru skreytt fínlega með grænum aspas og hvítum silfurfétopp.
Mynd eftir Elísabet Blöndal

Tanja og Ragnar
Tanja og Ragnar giftu sig við glæsilega athöfn í Dómkirkjunni og fór veislan fram í Nasa salnum. Akursóleyjar spiluðu stórt hlutverk í skreytingum, brúðarvendinum og barmblómunum. Parið valdi allan pakkann og voru blómaskreytingar á öllum 16 gestaborðum og háborði með fallegri blöndu af blómum. Svið og brúðartertuborð var skreytt með háum vösum.

Rakel Ýr og Hjálmar
Rakel Ýr og Hjálmar giftu sig á fallegum degi þann 30. ágúst. Þau völdu sér blóm sem þau notuðu til þess að skreyta sjálf borðin í veislunni, í „midsummer“ stíl — glaðleg og litrík í pastel litum. Brúðarvöndurinn var svo stílhreinn og elegant, úr hvítum rósum.
Mynd eftir Gummi.photography og Kristín Ásta
Hvernig virkar þetta?
Við tökum spjall saman
Segið okkur frá deginum, litum og stemningunni sem ykkur langar í.
Afhending daginn fyrir
Brúðkaupsblómin eru afhent daginn áður annaðhvort hjá okkur í Vesturhlíð 7 eða í salnum ef heimsending/uppsetning var pöntuð.
Stóri dagurinn
Þið njótið dagsins — skreytingarnar okkar koma fullkláraðar (allur pakkinn) eða í vatnsfötum fyrir ykkur til að skreyta salinn með (lágstemmdi og klassíski pakkinn).
Heyrðu í okkur og við fullkomnum stóra daginn þinn saman
Við bjóðum að sjálfsögðu einnig upp á sérhönnuð brúðkaupstilboð ef þú sérð fyrir þér að vilja fleiri blóm og skreytingar en þær sem eru innifaldar í brúðkaupspökkum okkar. Í góðri samvinnu við blómahönnuð okkar setjum við þá upp tilboð sem henta ykkar sýn fyrir stóra daginn.