Sérhannaðir viðburðir

Viðburðir & tilefni

Lifandi blóm breyta rými — og stemningu. Við höfum skreytt fjöldann allan af viðburðum, allt frá árshátíðum og skírnum til jarðarfara, og setjum saman tilboð sem tekur mið af því sem þú sérð fyrir þér.

Blómaskreyting með villilauk og greinum á ráðstefnu

Hvers konar viðburði skreytum við?

Enginn viðburður er eins, og engin skreyting heldur. Hér eru þau tilefni sem við fáum oftast - en listinn er alls ekki tæmandi.

Árshátíðir

Borðskreytingar, sviðsblóm og móttökuskreytingar sem lyfta salnum.

Skírnir

Fíngerðar skreytingar fyrir athöfnina og veisluborðið.

Jarðarfarir og minningarathafnir

Kistuskreytingar, kransar og vendir — unnið af nærgætni og með stuttum fyrirvara.

Afmæli og fermingar

Skreytingar sem passa við tilefnið, hvort sem er heima eða í sal.

Opnanir og vörukynningar

Blóm sem draga að athygli og ramma inn vörumerkið þitt.

Hvers kyns aðrir viðburðir

Sérðu eitthvað fyrir þér sem er ekki á listanum? Þá viljum við heyra í þér.

Hangandi blómaskreyting yfir vörukynningu í verslun

Blómaskreytirinn okkar

Við setjum saman tilboð út frá þinni sýn

Við vinnum hvert tilboð frá grunni. Erla blómahönnuður hlustar á hvað þig langar í, stingur upp á því sem er ferskast og fallegast þá stundina, og heldur sig innan þess ramma sem þú setur. Þú færð tillögu með verði áður en nokkuð er ákveðið.

Nokkur verkefni

Borðskreyting úr mosa, greinum og freyjubrá á viðburðiBlómastandur á markaði með vöndum og pottaplöntumSkírnarvagn skreyttur hvítum blómum og grænu

Hvernig virkar þetta?

01

Segðu okkur frá viðburðinum

Tilefni, dagsetning, staðsetning og fjöldi gesta — og hvernig þig langar að stemningin verði.

02

Við setjum saman tilboð

Erla blómaskreytir vinnur útfærslutillögu sem tekur mið af þinni sýn, árstíðinni og því sem er ferskast hverju sinni.

03

Afhending

Við komum með blómin á staðinn, setjum upp og göngum frá fyrir umsamið gjald eða þú sækir fullbúnar skreytingar í Vesturhlíð 7

Segðu okkur frá viðburðinum þínum

Sendu okkur línu með því sem þú sérð fyrir þér — tilefni, dagsetningu og stemningu. Erla hefur samband með tillögu og verði. Það kostar ekkert að fá tilboð.